Stjórnar- skipti í Blábankanum.

Sædís boðin velkomin í nýja stöðu.

Nú á dögunum fóru fram stjórnarskipti í Blábankanunm þar sem Sædís Ólöf Þórsdóttir tók við af Katli Berg Magnússyni sem stjórnarformaður.

Má með sanni segja að starf Blábankans hafi auðgast með aðkomu og dyggri stjórn Ketils í gegnum árin og eigum við honum margt að þakka.

Kveðjum við því með: “sjáumst síðar”.

Er allra víst að hans áhrifa mun gæta í starfi okkar áfram.

Mér finnst mikill heiður að hafa fengið að starfa með teyminu í Blábankanum undanfarin ár og taka þátt í þessu frábæra starfi. Núna í vor settum við skarpari sýn fyrir starfið og viljum vera miðstöð sköpunar á Vestfjörðum. Blábankinn er vettvangur skapandi starfs fyrir íbúa Dýrafjarðar, alla Vestfirðinga og skapandi gesti. Stórar hugmyndir byrja allar sem frækorn í huga okkar og ég er sannfærður um að Þingeyri og Blábankinn er frábær staður til að búa til verðmætt hugvit sem skapar virði í góðri sátt við umhverfið og fólk framtíðarinnar. Eftir fjögur ár sem stjórnarformaður finnst mér rétt að skila keflinu til næsta teymis og ég hef fulla trú á að það góða fólk muni lyfta starfi Blábankans á næstu hæðir. 

-Ketill Berg Magnússon

Okkur er að sama skapi mikil ánægja að fá Sædísi í sama hlutverk.

Öflugur, áræðinn og frjór leiðtogi sem mun setja mark sitt á starfið á komandi árum.

Mun reynsla hennar og útsjónarsemi vera okkur sterkur kompás.

Blábankinn á sérstakan stað í mínu hjarta frá því að ég tók þátt í Start Up Westfjords árið 2019.

Undanfarið ár naut ég þess heiðurs að sitja í stjórn Blábankans. Það hefur verið þrælskemmtilegt að taka þátt í að móta stefnu hans næstu árin og fylgjast náið með þeim fjölbreyttu verkefnum bankans, stórum sem smáum síðustu 12 mánuði. Framtíðin er björt fyrir skapandi Dýrfirðinga, skapandi Vestfirðinga og skapandi gesti. Næst tekur við seta sem stjórnarformaður og styðja við Gunnar Ólafsson, nýjan Blábankastjóra sem mun stýra fleyi Blábankans að suðupotti sköpunar á Vestfjörðum.

-Sædís Ólöf Þórsdóttir.

Einnig áttu sér stað aðrar breytingar á stjórn Blábankans og er hún hér eftir sem slík:

Sædís Ólöf Þórsdóttir, formaður.

Helgi Ragnarsson, f.hönd Arctic Fish

Guðrún Steinþórsdóttir, f.hönd íbúasamtakanna Átak.

Kristján Davíðsson, óháður.

Með bestu kveðjum.

Gunnar

Previous
Previous

SW23

Next
Next

Vinnustofur “Project EUROPE” í Blábankanum.