Styrktarsjóðir - vinnustofa í Blábankanum

Styrktarsjóðir - vinnustofa

Agnes Arnardóttir, verkefnastjóri hjá Vestfjarðastofu, kynnir styrktarsjóði sem standa til boða bæði fyrirtækjum og einstaklingum og að hverju þarf að huga við gerð umsókna, sem oft virðast óreyndum hálfgerður frumskógur.

Við vekjum sérstaklega athygli á þessari vinnustofu fyrir þau sem hafa áhuga á að kynna sér Atvinnumál kvenna, sem opnar fyrir styrkumsóknir nú í febrúar, en einnig verða kynntir aðrir styrkir í boði fyrir frumkvöðla og atvinnurekendur.

Vinnustofan fer fram á íslensku, og ensku eftir þörfum, og er án endurgjalds. Skráning og frekari upplýsingar á info@blabankinn.is.

Previous
Previous

Spennandi páskar á Þingeyri og í Dýrafirði

Next
Next

Frumsýning á „Digital North - Coworking in the Arctic Circle“