Aðfangadagsgleði
Árlega er haldin aðfangadagsgleði á íþróttasvæðinu á Þingeyri. Börnin leika í íþróttahúsinu og jólasveinarnir koma með pakka. Upplagt er að enda fjörið í sundlauginni í sömu byggingu. Gleðin hefst yfirleitt fyrir hádegi og stendur yfir í tæpa klukkustund.
Jólamarkaður við Dynjanda
Ný hefð hefur fæðst með opnun Dýrafjarðaganganna. Stefnt er að því að halda jólamarkað við Dynjanda í fyrsta sinn árið 2023 þar sem handverks- og listafólk frá öllum Vestfjörðum mun selja vörur sínar.
Opið hús með Íbúasamtökunum Átak
Reglulega er haldið opið hús þar sem íbúar og gestir geta heyrt um störf íbúasamtakanna og komið erindum sínum á framfæri.
Spilakvöld og prjónakvöld
Borðspilakvöld hafa verið haldin reglulega í Blábankanum, sem og prjónakvöld. Fylgist með dagskrá á Facebook hópnum Á döfinni.